Formaður
Kynning
Sosu námið
01.06.2007 14:40:56 / formadurslfi

Ný slóð

 

An eye for an eye makes the whole world blind, sagði Gandi

Komin ný slóð á þetta blogg: http://formannslif.blogcentral.is/

Kveðja Helga Dögg Sverrisdóttir, sjúkraliði


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 18:46:39 / formadurslfi

Þingið afstaðið

Það yrði bókstaflega ólíft í pólitíkinni ef andstæðingar yrðu endilega hatursmenn, mælti ráðherrann Hannibal Valdimarsson d.1991.

Þá lauk fulltrúaþingi félagsins í dag og voru norðankonur fegnar að komast heim, enda búnar að vera í sjálfboðinni vinnu fyrir Slfí í hálfan annan dag. Dagskrá þingsins á undan áætlun, engin sérstök málefni í gangi sem þingfulltrúar tjáðu sig um.

Fulltrúar Dsne ákváðu að halda sig til hlés vegna félagsgjaldsins. Töldu það með öllu ógerlegt að leggja fram tillögu um lækkun á félagsgjaldinu á þessu þingi.

Markverður atburður gerðist að okkar mati sem búum norðan heiða og það var að tveim áhugasömum sjúkraliðum af Norðurlandi eystra var stillt upp til að starfa í sitt hvorri nefndinni og er það gleðiefni. Það eru nokkuð mörg ár síðan það gerðist síðast, þrátt fyrir góðan vilja sjúkraliða innan Dsne að starfa fyrir félagið. Dropinn holar steinninn.

Hér er krækja á umfjöllun um þingið: http://www.eggin.is/content/view/543/9/

 Hér má sjá brot úr umfjölluninni:

,,Í ársskýrslu SLFÍ er farið hörðum orðum um gagnrýnendur brúarinnar. Meðal annars er rætt um „ranghugmyndir“ og „aðför“ að forystu félagsins. Gagnrýnendurnir gætu án efa valið einhver álíka orð um forystuna. Er ekki mál að linni? Væri ekki við hæfi að slíðra sverðin og leita sátta í þessu stóra og mikilvæga stéttarfélagi? Umræðan um brúna var að sönnu óvægin – en hún var það á báða bóga. Gagnrýnin datt auk þess ekki af himnum ofan. Ástæðan fyrir deilunum var auðvitað ekki að dvergvaxinn hópur af þrjótum hefði ætlað að ráðast á forystuna fyrir engar sakir".

Kveðja Helga Dögg, sjúkraliði m.m.


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 20:16:27 / formadurslfi

Komin á leiðarenda

Ágætu lesendur læt hér fylgja nokkur spakmæli á ensku, hef afskaplega gaman af þeim og ég held að öllum sé hollt að lesa, spá og ígrunda þau. Allt er þetta til gamans gert og hef ég reynt að njóta þess tíma sem liðinn er frá ákvörðun minni að gefa kost á mér í formannskjör Slfí og fram til dagsins í dag.  

  "There are no failures just experiences and your reactions to them."
-Tom Krause    

"The greatest pleasure in life is doing what people say you cannot do."
-Walter Bagehot   

"A problem is a chance for you to do your best."
-Duke Ellington   

"You can complain because roses have thorns, or you can rejoice because thorns have roses." -Ziggy   

"If you deserve commitment from anyone, it´s yourself."
-Ronnie Nijmeh 

Ég hef hugsað mér að halda þessari síðu úti svolítið lengur, spjalla um lífið, tilveruna og Slfí.  Takk fyrir innlitið og góðar athugasemdir, hef haft gaman af að lesa þær, sumar þó meira en aðrar. 

Með góðri kveðju, Helga Dögg


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 22:34:14 / formadurslfi

Lífið heldur áfram

Í lýðfrjálsu þjóðfélagi hafa menn rétt til að velja hinn verri kost, ef þeir sjálfir vilja, (Bjarni Ben. Forsætisráðherra d.1970).  

Í þeim ólgusjó sem skrifari hefur verið frá því að hann ákvað að fara gegn sitjandi formanni Slfí hefur margt lærst og áunnist. Margir sjúkraliðar hafa innt mig eftir svari um hvað gerist ef ég næ ekki kjöri.

 

 

Svarið er einfalt; lífið heldur áfram og mun ég áfram sýsla við nám, starf, félagsstörf, auk þess að vera móðir og amma. Ég læt ekki hugfallast þó ekki gangi allt að óskum hvað þetta formannskjör varðar, svo engra breytinga er að vænta í lífi mínu. Ég hef lært það að geri maður aldrei tilraun veit maður aldrei hvað maður getur og ég lít svo á að áskoranir í lífinu eru til þess að takast á við þær sem hvert annað verkefni.

  

Ég mun ekki fara ósátt með minni hluta atkvæða frá sjúkraliðum, það er og hefur alla tíð verið erfitt að fara gegn sitjandi formanni hvort sem það er innan Slfí eða öðrum félagsskap. Væri ég hins vegar sitjandi formaður og næði ekki 2/3 atkvæða myndi ég líta á það sem vantraust á mig og allt undir 70 % er stórt tap fyrir sitjandi formann. Það sýnir að viðkomandi hefur ekki nægilegt traust innan hópsins, óánægja er kraumandi og það er ekki gott.

 

Með framboði mínu hefur sjúkraliðum gefist kostur á að velja annað en rússneska kosningu og það er öllum hollt endrum og eins að fara í gegnum slíkt. Það er hins vegar von mín, að sjúkraliðar verði meira vakandi eftir þessa tilraun og haldi stjórn og formanni félagsins við efnið, því geri þeir það ekki, gerir það enginn.

 

Sjúkraliðar verða að muna að nota þá hæfileika sem þeim hafa verið veittir - það mundi verða afar hljótt í skóginum, ef engir fuglar syngja þar nema þeir sem syngja best.

  

Sjúkraliðar sem vilja hafa áhrif innan félagsins ættu að gefa kost á sér til starfa, því margar eru nefndirnar. Engin ástæða er fyrir sama sjúkraliðann að sitja í mörgum nefndum eins og er í dag, dreifa þarf kröftum, ábyrgð og ólíkum sjónarmiðum. Uppstillinganefnd félagsins á að fara fremst í þeim flokki, ásamt því að sjúkraliðar þurfa að vera ásæknari í störf innan Slfí.

 

 Kveðja Helga Dögg Sverrisdóttir, sjúkraliði  

» 7 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 15:09:11 / formadurslfi

Fundarskipan

Farsæld er ekki peningar, farsæld er hugsunarháttur (Sigvaldi Hjálmarsson rithöfunur, d.1985). 

Fundarskipan getur verið misjöfn allt eftir hópnum sem situr fundinn, en þó allt innan fundaskapa. Það fer eftir fjölda fundarmanna en eftir því sem fleiri sækja fundinn þarf aukið skipulagið ef tryggja á réttlæti.

 

,,Það má skipta fundum í nokkra meginflokka eftir fundarskipaninni, en hér nefni ég einn. Það er tiltölulega óformlegir fundir smáhópa, stjórna og nefnda. Gert er ráð fyrir að þeir séu all tíðir og komi reglulega saman, svo að hverju sinni þarf ekki að fjalla um nema fá mál eða aðeins eitt. Jafnframt sitja aðeins fáir þessa fundi. Af þessum sökum eru þeir harla frjálslegir enda þótt formaður stýri fundi og tiltekin mál séu rædd og afgreidd hverju sinni. Umræður á fundum sem þessum eru einatt venjulegt samtal um dagskrárefnið“.

 

Það má í ljósi þessa upplýsinga velta því fyrir sér hvaða málefni það eru innan Slfí sem þarf að leggja fram sem formlega tillögu. Skrifari hefur á síðast liðnu ári upplifað að hentistefna virðist ríkja þegar kemur að þeim málaflokki. Eðli hvers máls virðist ekki hafa neitt að segja þegar taka á ákvörðun, og að gefnu tilefni tel ég nauðsynlegt að félagið marki sér stefnu um það hvernig mál eigi að berast stjórn og hvernig eigi að afgreiða mál.

 

 

Bilun var í kerfinu í gær og því kom engin færsla inn.

 

Kveðja Helga Dögg Sverrisdóttir, sjúkraliði.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 11:40:36 / formadurslfi

Lífeyrir Dana

Andinn getur hafist hátt, þó höfuð lotið verði

(Steing. Thorsteinss. F. 1831d.1913). 

 

Nú hækka Danir eftirlaunaaldur launþega og ekki má setja inn í starfssamning að launþegi fari á eftirlaun 65 ára eins og áður var. Viðmiðunaraldurinn er 70 ár, en launþeginn hefur valið. Rætt er við nokkra einstaklinga um málið og sitt sýnist hverjum. Á meðan einn hópur er sáttur er annar það ekki. Flestir eru sammála um að betri heilsa og starfsorka sé enn til staðar hjá fólki á þessum aldri og því geti flestir unnið til sjötugs. 

 

Til fjölda ára hafa Danir talað um gráa gullið, en reglugerðir hafa komið í veg fyrir að fólk sjái sér hag í að vinna svona lengi, eða til sjötugs. Eitt sjónarmið sem kemur inn í umræðuna en það kemur frá hagfræðingi félagi eldri borgara og segir hann að sýnin á hinn aldraða verði á annan hátt með þessu reglum.

 

Evrópusambandið hefur kunngjört, að bannað sé að mismuna fólki eftir aldri þegar kemur að vinnumarkaðnum og er atvinnumálaráðherra Dana mjög sáttur við þessi lög, sem taka gildi frá næstu áramótum. Ráðherrann segir að samfélagið hafa þörf fyrir þessar vinnandi hendur, mannfólkið lifir lengur og er við betri heilsu en hér áður fyrr.

 

Fyrir danskt efnahagslíf er þetta gott og þarft skref.

 

 

Góða hvítasunnuhelgi ágætu lesendur. Gott skíðafæri er á Akureyri.

 

 Kveðja Helga Dögg Sverrisdóttir, sjúkraliði.

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 20:30:26 / formadurslfi

FB 1977

          Heilræðin eru handa þeim sem heyra vilja, (Valbjörg Kristmundsdóttir, skáldkona d.1997) 

Þegar verið er að ræða þróun sjúkraliðanámsins er oft gaman að glugga í það sem gamalt er. Hér má sjá skipulag sjúkraliðanámsins sem ég tók í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti og lauk fyrir nærri þrjátíu árum. Þetta var í fyrsta skiptið sem sjúkraliðanámið var kennt samkvæmt fjölbrautarkerfinu. 

Sjúkraliðanámið gaf 72 einingar í bóklegu fræðunum og starfsnámið var 41 vika sem svarar til 41. einingar. Einingarfjöldi til sjúkraliðanámsins árið 1976-77 var því 113 einingar.Faggreinar voru 42 bóklegar einingar á þessum tíma auk verknámsins, engir áfangar í  íslensku, ensku, dönsku og stærðfræði eru taldir með.    

Sjúkraliðanámið í FB haustið 1975 til áramóta “76 - “77. 

Danska 4 annir. Eðlisfræði 1 önn. Efnafræði 2 annir. Enska 2 annir. Félagsfræði 2 annir. Heilsufræði og heilsuvernd 4 annir. Hjúkrunarfræði 4 annir. Íslenska 3 annir. Líffræði 3 annir. Líkamsfræði 1 önn. Líffæra og lífeðlisfræði 3 annir. Listasaga 1 önn. Mynd og handmennt 2 annir. Næringarfræði 1 önn. Sagnfræði 2 annir. Sálar- og uppeldisfræði 4 annir. Skyndihjálp 1 önn. Stærðfræði 3 annir.

 Hjúkrunarfræði og tengdar greinar: orðrétt á einkunnarblaði. 

Almenn hjúkrunarfræði. Hjúkrun barna. Aðhlynning gamalmenna. Aðhlynning sjúklinga á heimilum. Sjúkdómafræði og aðhlynning sjúklinga á handlækningadeildum. Sjúkdómafræði og aðhlynning sjúklinga á lyflækningadeildum. Geðrænir sjúkdómar og geðvernd. Sýklafræði og sýnatökur. Meinafræði.

Þegar þetta er skoðað má kannski sjá að ekki hefur orðið jafn mikil þróun í námi sjúkraliða á þessum þrjátíu árum eins og við viljum láta í veðri vaka, innihald og nöfn áfanga hafa breyst eftir því sem fræðunum fleygir fram, en það er hin almenna þróun. Starfsnám hefur vikið fyrir fræðinámi og kannski ekki, því jafnhliða starfsnámi á fræðilegt nám sér stað og það má ekki vanmeta. Sérnám fyrir sjúkraliða er viðbót, ekki er hægt að tala um þróun í námi sjúkraliða í því samhengi. 

Til gamans má geta þess að mitt holl lærði að sprauta í vöðva. Kennari okkar sagði að það yrði verk sjúkraliða í framtíðinni og þá væri gott fyrir okkur að hafa lært það. Hjúkrunarfræðingur á einstaka vinnustað leyfði sjúkraliðanemum að spreyta sig við að sprauta í verknáminu. 

Kveðja Helga Dögg Sverrisdóttir, sjúkraliði.


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 20:20:17 / formadurslfi

Námskrá

Ganga verður að störfunum eins og þau horfa við, af því verksviti sem völ er á (Magnús Torfi Ólafsson, ráðherra d.1998).  

Heilmilkil skýrsla starfnámsmatsnefndar leit dagsins ljós árið 2006 og er að sjá þó nokkrar beytingartillögur á námi í framhaldsskóla. Verið er að tala um að grunneiningar eða kjarni verði 27 einingar, en síðan á þörf atvinnulífsins og nemandans sjálfs að ráða för.

 

Starfsgreinaráðin hafa valdið og verður engu breytt eins og segir í skýrslunni nema með þeirra samþykki.

 

Þegar svo miklar breytingar eiga sér stað er spurning hvort ástæða sé ekki til að endurskoða sjúkraliðanámið frá grunni. Þróun og breytinar innan heilbrigðisgeiras kalla á slíka  endurskoðun. Þrepaskipt nám þar sem sérnám sjúkraliða er innanborðs gæti verið grunnnámið í nýrri námsskipan. Valmöguleikar gætu orðið fleiri fyrir nema sem hyggst mennta sig til sjúkraliðastarfa. Ef nemandi ætlar að ljúka stútentsprófi þarf hann að bæta við sig þeim einingum sem á vantar, en þær einingar sem hann hefur þegar lokið, eru að fullu metnar.

 

Stefnan er að nota raunfærnimat til að meta nám á styttri námsleiðum segir í skýrslunni.

 

Námið er viðtökumiðað, fer eftir þörfum atvinnulífsins og nemandans. Möguleikar í þessum hugmyndum höfunda eru óteljandi og það væri akkur fyrir sjúkaliðastéttina að slík námsskipan kæmist á. Námsskrá á að vera í stöðugri þróun og þar með talin námskrá fyrir nám sjúkraliða. Skoða þarf nýja möguleika sem bjóðast innan starfssviðs sjúkraliða og nú þegar búið er að samþykkja hjúkrunarstofur má ætla að starfssvið sjúkraliða geti rýmkast.

 

Talað er um fagháskóla þar sem faghópar geta elft nám sitt og þekkingu enn betur í styttra námi á háskólastigi, en í skýrslunni segir að forkröfur í þann skóla sé stútentspróf. Ef það verður raunin má spyrja hvort slíkt henti sjúkraliðastéttinni en það verður að skoða í víðara samhengi.

 

Norðmenn hafa nú þegar tekið til í skólakerfinu hjá sér og breytingar tóku gildi þar s.l. haust. Ekki eru þetta ólíkar leiðir sem verið er að fara.

 

 Kveðja Helga Dögg Sverrisdóttir, sjúkraliði 

  


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 10:26:46 / formadurslfi

Kynning á námi

Því lengur sem við skótum iðrun vorri á frest, þess örðugra verður oss afturhvarfið, svo mælti Pétur Péturson biskup (f.1808 d.1891).

 

 

Undanfarin ár hefur Sjúkraliðafélagið sent nemendum í síðasta bekk grunnskólans bækling sem heitir; Hvaða starf klæðir þig ?, og hefur hann farið inn á heimili hvers nemanda. Nú er það svo að Slfí er ekki eini aðilinn sem sendir slíkan bækling, margir nota þessa leið til markaðssetningar.

  

Þegar markaðsetning sem þessi er notuð þarf eftirfylgni, fylgjast þarf með hvort og þá hversu margir skila sér inn í sjúkraliðanám eftir að hafa kynnt sér námsleiðina. Ef félagið fylgist ekki með, er ekki vitað hvort markaðssetning skili sér í fjölgun nema í sjúkraliðanám. Nýliðun í stéttina fer að verða eitt að brýnastu verkefnum innan félagsins.

  

Þegar ungur einstaklingur á að velja sér námsleið virðist ekki duga að senda bækling einan og sér. Eftirfylgni þarf að vera og það er hægt að gera með heimsókn í grunnskólann, þó er hyggilegra að gera slíkt í fyrsta bekk framhaldsskóla. Öllu jöfnu eru nemendur að taka grunnfögin á fystu önn. Sérfögin koma síðar á námstímanum og því er þessi markhópur kjörinn fyrir Slfí.

 

Ég dreg þessa ályktun eftir óformlega könnun hjá tæplega hundrað nemendum í tíundabekk á landsbyggðinni þar sem bæklingurinn hafði verið borinn út.

 

 

Kveðja Helga Dögg Sverrisdóttir, sjúkraliði


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 16:20:28 / formadurslfi

Kosning

Sjúkraliðar hafa nú flestir fengið kjörseðla sína og heyrist mér á mörgum að þeir hafi kosið í síðustu viku. Gott mál, ekki að bíða með það til morguns sem hægt er að gera í dag. Las skemmtilega  vísu eftir Pál Vídalín sem ég vil leyfa ykkur að njóta.

Einatt heyri ég eitthvað nýtt

ýmist gerir viðra,

núna kemur á norðan hlýtt,

njóti þeir þess hér syðra.

Kveðja Helga Dögg Sverrisdóttir, sjúkraliði.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 13:29:46 / formadurslfi

Ljóð, samstaða

Þetta skemmtilega ljóð las skrifari um samstöðu og læt það fylgja hér á eftir góðum pistli um samstöðu og gagnrýni sem er færslan á undan þessari.

Samstaðan
er
hverful
í
raun
!!!!!!!
!!!!!!!
ekki
eða
hvað?


(Velke
1971- )

Kveðja Helga Dögg Sverrisdóttir, sjúkraliði


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 13:19:08 / formadurslfi

Samstaða

Margur verður af valdi vondur

,,Ein af grundvallarreglum í þroskuðu lýðræðissamfélagi er reglan um gagnrýna samstöðu. Hún gengur út frá jafnvægi tveggja afla. Maður þolir öðrum að hafa aðra skoðun og er tilbúinn til þess að verja þann heilaga rétt einstaklingsins. Þar sem gagnrýnin samstaða ríkir er minni hætta á að menn skrúfist upp í einhverskonar sjálfsréttlætingu, sem hefur sig yfir gagnrýni annarra, fer sínu fram og segir síðan: „af því bara“ eða „ég ræð“. Gagnrýnin samstaða krefst þroskaðs skilnings á lýðræði og vilja til þess að una öðrum þess að hafa aðra skoðun án þess að fara í fýlu af minnsta tilefni. Gagnrýnin samstaða heldur þjóðfélaginu saman og leiðir það fram á veginn til meiri og dýpri þroska. Um gagnrýnina sagði einhver:

Unnt er að sleppa við gagnrýni með því að
segja ekki neitt,
gera ekki neitt og
vera ekki neitt.

Heilög skylda fólks í lýðræðissamfélagi er að sýna samstöðu, þola það að sitja við sama borð með öðrum en bljúgum jámönnum. En ef menn verða vondir og þeim hleypur kapp í kinn og láta þykkjuna í ljós (og það mega menn vissulega gera) þá hafa þeir sinn heilaga rétt sem felst í því - að gagnrýna!

Gagnrýnin samstaða er ein af grundvallarreglunum í lýðræðisþjóðfélagi. Samstaða án gagnrýni er undirlægjusamstaða, hálfvolg, ólystug og óverjandi. Gangrýni án samstöðu er sundrandi, eyðileggjandi og óþolandi. Gagnrýnin samstaða er hugtakapar sem eigi má í sundur skilja" (heimild örnbardur).

Kveðja Helga Dögg Sverrisdóttir,sjúkraliði

 

 

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 16:37:51 / formadurslfi

Ljóð um ritskoðun

 Hugsunarlaus vaðall kæfir oft áhrifin af því sem á að segja.

Ritskoðun 

Viltu deyja
þegja
fyrir lífið
ég styð
þitt andartak
vængjablak
frjálsra handa
innan leyfilegra banda
sem þýðir að þú átt
að deyja
eða þegja   (
Kristinn Ágúst 1984-)

Kveðja Helga Dögg Sverrisdóttir, sjúkraliði

 



» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2007 16:24:53 / formadurslfi

Létt í lok vikunnar

Sérhver maður má hugsa um þig hvað sem hann vill, en taktu það ekki of alvarlega. Það sem skiptir máli er hvað þér sjálfum finnst.“ 

Nú er bara að brosa... 

Eldri hjón ákváðu að selja fellihýsið sitt og fá sér húsbíl í staðinn. Konan samdi auglýsingu, og eins og kvenna er siður lét hún þess getið að smá ryð væri farið að myndast. Um kvöldið komu ung hjón að skoða, konan var ekki heima svo karlinn fór að sýna þeim fellihýsið. Þegar þau voru búin að skoða það segir ungi maðurinn ,,hvar er ryðið í vagninum" karlinn varð vandræðalegur á svip en sýndi þeim ungu svefnskálann og sagði ,,við gerðum það yfirleitt hér". 

Kveðja Helga Dögg Sverrisdóttir, sjúkraliði 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 15:06:08 / formadurslfi

Landsfélag

Ég veit ekkert forvitnilegra en kynni af þeim furðuheimum hæfileika sem með hverjum manni búa (Sigurður Haukur Guðjónsson prestur).

Sjúkraliðafélagið er landsfélag og státar sig af því við hátíðleg tækifæri, en um 30 % félagsmanna búa á landsbyggðinni (talan kemur frá varaformanni félagsins). Til að halda úti góðu og öflugu starfi, þarf að sjá til þess að virk starfsemi sé fyrir hendi um allt land og slíkt kostar peninga. Á þessu ári varð Norðurlandsdeild eystri sem telur rúma 160 félagsmenn, að sætta sig við niðurskurð frá Slfí um 100.000 kr. Nota átti þessa aura til fræðslu fyrir félagsmenn deildarinnar. Það fjármagn sem deildarnar fá eru um tvær miljónir af 69 miljóna króna innkomu félagsins.

 

Nú sem hingað til átti fræðslan að vera í fyrirlestrarformi, tvívegis á starfsárinu og af ólíkum toga, fræðsla sem kemur sjúkraliðum vel, í leik og starfi. Eftir umræddar breytingar þarf stjórn deildar að sækja um sérstakt framlag til framkvæmdastjórnar sem ákveður hvort og þá hversu mikið deildin fær, ef hún hyggst vera með fræðsluerindi. Það er bagalegt að stjórn deildar skuli ekki njóta trausts til að fara með það fjármagn sem hún telur nauðsynlegt til að halda uppi virkri starfssemi í deildinni. Leiða má hugann að því hvort við finnum ekki skynsama menn aðra en þá sem eru á sömu skoðun.

 

Kveðja Helga Dögg Sverrisdóttir, sjúkraliði

  

 


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
RSS tengill